Innlent

Bátur bilaði útaf Reykjanesi í nótt

Vél bilaði í litlum fiskibáti þegar hann var staddur út af Reykjanesi í nótt. Bátsverjinn lét tilkynningaskylduna vita og var björgunarbáturinn Oddur V. Gíslason  sendur eftir honum og dró hann til Grindavíkur. Gott veður var á svæðinu og var bátsverjinn ekki í hættu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×