Landhelgisgæslan fylgist með ferðum Sea Shepherd 15. maí 2007 12:45
Skip Sea Sheperd-samtakanna er á leið hingað til lands í þeim tilgangi að spilla fyrir hvalveiðum Íslendinga. Paul Watson, leiðtogi samtakanna, segir liðsmenn þeirra ætla að leggja líf sitt að veði til að koma í veg fyrir dráp á hvölum. Rúm tuttugu ár eru frá því að Sea Sheperd-menn létu síðast að sér kveða á Íslandi en þá sökktu þeir hvalbátum í Reykjavíkurhöfn og unnu spellvirki í Hvalstöðinni í Hvalfirði. Paul Watson, leiðtoga samtakanna var í kjölfarið vísað úr landi með ótímabundnu endurkomubanni. Sú staðreynd virðist valda Sea Sheperd litlum áhyggjum því samkvæmt fréttatilkynningu á heimasíðu þeirra lagði skip samtakanna, Farley Mowat, af stað frá Ástralíu í morgun áleiðis til Íslands. Áætlun samtakanna ber hið mikilúðlega heiti Ragnarök, sem samkvæmt íslenskri orðabók þýðir heimsslit, og markmið hennar er að koma í veg fyrir hvalveiðar Íslendinga í sumar og beina kastljósi umheimsins að því sem samtökin segja ólöglegt athæfi. Skipið hefur undanfarna mánuði siglt um Suðurhöf og truflað hvalveiðar Japana en nú er röðin komin að Íslendingum. Ekki er vitað hvort Paul Watson verður með í för en haft er eftir honum á heimasíðu samtakanna að liðsmenn þeirra ætli að leggja líf sitt að veði til að koma í veg fyrir hvaladráp. Búist er við að skipið verði komið hingað til lands eftir um það bil mánaðar siglingu. Landhelgisgæslan fylgist með ferðum Sea Sheperd og að sögn formælanda hennar getur hún gripið til ýmissa ráða gegn hugsanlegum lögbrjótum, hvort heldur innan 12 mílna landhelginnar eða 200 mílna efnahagslögsögunnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Rafmagnsleysi á stórum hluta landsins Innlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Horfði á haförn og lax berjast fyrir lífi sínu út um stofugluggann Innlent Sló út við reglubundið viðhald Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Ekki sniðugt að hafa öll eggin í sömu öskjunni Innlent Fleiri fréttir Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Sjá meira