Innlent

Murat segir gruninn hafa eyðilagt líf sitt

Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar
MYND/AFP

Robert Murat sagði í viðtali við Sky fréttastofuna í kvöld að grunurinn um að hann tengdist mannráni Madeline McCann hefði eyðilagt líf hans. Hann sagðist hafa verið gerður að blóraböggli af lögreglu í málinu. Murat var handtekinn í gær og yfirheyrður í 18 klukkustundir. Hann var látinn laus í dag vegna skorts á sönnunargögnum gegn honum.

Hann sagði að fjölskylda hans, bæði í Portúgal og á Bretlandi, hefði þjáðst mikið vegna málsins.

„Eina leiðin fyrir mig til að komast af er ef þeir finna mannræningja Madeleine," sagði hann í viðtalinu sem hann veitti einungis Sky fréttastofunni.

Tveir aðrir voru yfirheyrðir vegna málsins auk Murats, en hann býr með móður sinni í glæsihúsi um 100 metra frá staðnum þaðan sem hin fjögurra ára Madeleine hvarf.

Murat var tekinn til yfirheyrslu eftir að lögregla hafði fylgst með honum í eina viku. Heimildamaður Sky segir að hann hafi veirð meðvitaður um að með honum var fylgst. Hann hafi því farið á lögreglustöð þar sem hann kvartaði yfir því að fylgst væri með honum.

Heimildarmenn Sky segja Murat halda því fram að hann hafi fjarvistarsönnun kvöldið sem stúlkan hvarf. Hann hafi komið heim klukkan 19 og móðir hans klukkan 20. Þau hafi borðað saman og síðan farið að sofa.

Lögreglan leitaði meðal annars í vatnsbrunni við sundlaug á eign mæðgnanna og án árangurs í pappírstætara á heimilinu.

Nú eru 12 dagar síðan Madeleine hvarf og ekkert hefur spurst til hennar síðan. Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við mannránið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×