Innlent

Sex slösuðust í bílslysi

Sex manns slösuðust og voru fluttir á Slysadeild Landsspítalans, í hörðum árekstri tveggja bíla á mótum Kalkofnsvegar og Geirsgötu í miðborginni um ellefuleytið í gærkvöldi. Ökumenn voru tvær sautján ára stúlkur og voru þær fluttar á Barnaspítala Hringsins, samkvæmt bókun lögreglu.

Engin mun þó hafa slasast lífshættulega en bílarnir eru stórskemmdir. Öðrum bílnum mun hafa verið ekið í veg fyrir hinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×