Innlent

Niðurfærsla Björns og Árna staðfest

Landskjörstjórn hefur formlega staðfest að útstrikanir á kjördag urðu til þess að þeir Björn Bjarnason og Árni Johnsen færðust niður um eitt sæti. Björn er því í þriðja sæti í Reykjavíkurkjördæmi suður. Hann færðist niðurfyrir Illuga Gunnarsson. Árni er í þriðja sæti í Suðurkjördæmi. Hann færðist niður fyrir Kjartan Þ. Ólafsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×