Innlent

Ásókn í lóðir á Urriðaholti

Tilboð bárust í allar þær fjörutíu og sjö lóðir sem opnað var fyrir í Urriðaholti í Garðabæ í gær. Tilboðum var tekið í rúmlega helming lóðanna. Í boði voru lóðir undir fjölbýli, raðhús, parhús og sérbýli.

Þar á meðal voru sex óvenju stórar einbýlishúsalóðir sem standa næst Urriðavatni og er heimilt að reisa allt að 900 fermetra hús á þeim. Vonast var eftir 50-60 milljónum fyrir þær lóðir. Tilboð bárust í allar lóðirnar en aðeins einu var tekið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×