Innlent

Dæmdur fyrir nauðgun

Hæstiréttur dæmdi í dag Stefán Hjaltested Ófeigsson í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot. Hann þröngvaði konu með ofbeldi til samræðis og annarra kynferðismaka.

Frásögn konunnar þótti trúverðug auk framburðar vitna. Konan hlaut líkamlega áverka, fékk lost og hefur glímt við andlega erfiðleika í kjölfar atburðarins. Stefáni er gert að greiða konunni 1.000.000 kr. í skaðabætur og auk þess allan saka- og áfrýjunarkostnað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×