Innlent

TF Sif líklega ónýt

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir að TF Sif sé að öllum líkindum ónýt. Hann segist þegar vera búinn að gera ráðstafanir til að útvega nýja þyrlu. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir mikil mildi að enginn hafi slasast.

Þetta kom fram í máli þeirra í aukafréttatíma á Stöð 2 í kvöld um þyrluslysið.

Björn sagði ljóst að TF Sif væri ónýt og nú væri bara eftir að koma henni upp úr sjónum. Hann sagði þyrluna vera tryggða að fullu og aðalatriðið að allir hefðu sloppið ómeiddir úr slysinu.

Ný þyrla fengin
Áhöfnin heil á húfi í Straumsvíkurhöfn, ásamt Georg Lárussyni, forstjóra Landhelgisgæslunnar

Í máli Björn Bjarnasonar kom einnig fram að hann hafi í kvöld sett sig í samband við frönsku þyrluleiguna Eurocopter í París til að fá nýja þyrlu í stað TF Sifjar. Hann sagðist þó ekki vilja spá fyrir um hvenær sú þyrla kæmi hingað til lands.

Björn sagði að það væri mikil eftirsjá eftir TF Sif enda hefði þyrlan þjónað Landhelgisgæslunni vel á þeim 22 árum sem hún verið í notkun.

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, tók undir orð ráðherra og sagði það mikil mildi að enginn hefði slasast.

Björn Bjarnason og Georg Lárusson tóku á móti áhöfn TF Sifjar þegar hún kom til lands í kvöld. Áhöfnin fær áfallahjálp en má hins vegar ekki ræða við fjölmiðla fyrr en hún hefur veitt Rannsóknarnefnd flugslysa upplýsingar um slysið.


Tengdar fréttir

Búið að bjarga mönnunum fjórum sem voru um borð í TF Sif

Búið er að bjarga mönnunum fjórum sem voru um borð í TF Sif þegar hún féll í sjóinn. Mennirnir eru allir heilir á húfi og ómeiddir samkvæmt heimildum Vísis. Þyrlan var á æfingu með björgunarsveit Hafnarfjarðar þegar slysið varð.

Áhöfn slapp ómeidd eftir að TF Sif féll í sjóinn

TF Sif, þyrla Landhelgisgæslunnar, féll í sjóinn mitt á milli Straumsvíkur og Hafnarfjarðarhafnar um klukkan sjö í kvöld. Fjórir menn voru um borð en þeir sluppu allir ómeiddir. Þyrlan er enn á floti í sjónum og reynt verður að hífa hana upp.

Verða að taka spaðana af TF Sif

Taka verður spaðana af TF Sif til að hægt verði að snúa vélinni við þar sem hún liggur á hvolfi í sjónum samkvæmt upplýsingum Vísis. Kafarar eru nú á leiðinni til að meta aðstæður og finna út hvernig best er að hífa þyrluna upp úr sjónum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×