Golf

Woods vann 13. titilinn

Það stenst enginn Tiger Woods snúning.
Það stenst enginn Tiger Woods snúning. Nordic Photos/Getty
Tiger Woods sýndi enn eina ferðina og sannaði að aðrir kylfingar komast ekki með tærnar þar sem hann hefur hælana þegar hann bar sigur úr býtum á bandaríska PGA-meistaramótinu á Southern Hill-golfvellinum í Oklahoma. Woods vann þar með sinn 13. stórmótstitil. Woods, sem hafði þriggja högga forystu fyrir lokahringinn, lék hringina fjóra á 272 höggum, tveimur höggum minna en Woody Austin og þremur minna en Suður Afríkubúinn Ernie Els.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×