Reyndustu fjallamenn björgunarsveitanna leita á Virkisjökli 22. ágúst 2007 07:08 Matthias Hinz, einn tveggja Þjóðverja, sem er saknað. MYND/365
Þyrla Landhelgisgæslunnar fer með morgninum til leitar að þýsku ferðamönnunum tveimur, sem saknað er. Björgunarsveitarmenn frá Höfn leituðu þeirra í grennd við Skaftafell og Vatnajökul í gær, án árangurs. 50 björgunarsveitarmenn hefja aftur leit klukkan níu. Engar óyggjandi vísbendingar eru þó um að þeir séu á þessu svæði, en það er talið líklegt. Búið er að ganga úr skugga um að þeir hafi ekki farið úr landi með öðrum hætti en fyrirhugað var fyrir síðustu helgi. Fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörgu að í nótt hafi undanfarar úr björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu farið austur en þeim var ætlað að leita hluta Virkisjökuls en það svæði er erfitt yfirferðar og hættulegt. Undanfarahópa skipa reyndasta fjallabjörgunarfólk félagsins. Veður hefur þó hamlað leit, en mikil rigning er í Skaftafelli og mjög lágskýjað. Bíða undanfararnir því færis á að komast á jökulinn. Hið sama er að segja um þyrlu Landhelgisgæslunnar sem áætlað var að færi austur fyrr í morgun en aðstæður gera leit úr lofti illmögulega á þessari stundu. Aðrir þættir leitarinnar eru í fullum gangi auk þess sem verið er að kanna allar vísbendingar sem berast eftir því sem Landsbjörg segir.
Mest lesið „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Stór skjálfti í Bárðarbungu Innlent Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Innlent Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Innlent Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Erlent Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Innlent Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Erlent Tíu ára stelpa frá Vík í úrslitum í Eurovision barna í Danmörku Innlent Fleiri fréttir „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Stór skjálfti í Bárðarbungu Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Búin að loka fyrir kort ungmenna á veðmálasíðum Veðmál barna og verslunarmiðstöð í Vogum Búðarhnuplari í efri byggðum reyndist vera eftirlýstur Segir málefnasamninginn ófjármagnað orðagjálfur Ákvörðun tekin án samráðs við nokkurn nema MS og Bændasamtökin Vilja skýrslu frá ráðherra um lokun flugbrautar Segir ekkert til í ásökunum KÍ um flokkadrætti Tíu ára stelpa frá Vík í úrslitum í Eurovision barna í Danmörku Samþykktu að breyta skráningu svo þiggja megi styrki Fer fram á stjórnsýsluúttekt á aðdraganda lokunarinnar Stjórnsýsluúttekt á lokun flugbrautarinnar og endurgreiðsla styrkja Skora á fulltrúa sveitarfélaganna að greina frá sinni afstöðu „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Festist í fjöru á höfuðborgarsvæðinu Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Kennarar gengu út og nýr borgarstjórnarmeirihluti Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Svona skipta oddvitarnir stólunum Voru búin að segja að þeim hugnaðist ekki tillaga Ástráðs Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag Sjá meira