Viðskipti innlent

Hagnaður Byrs jókst um rúmt 521 prósent

Forsvarsmenn Byrs. Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður Byrs, og Ragnar Z. Guðjónsson, framkvæmdastjóri sparisjóðsins.
Forsvarsmenn Byrs. Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður Byrs, og Ragnar Z. Guðjónsson, framkvæmdastjóri sparisjóðsins. Mynd/Pjetur

Hagnaður Byrs sparisjóðs nam rúmum 4,3 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 698,6 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þetta er 521,7 prósenta aukning á milli ára. Byr varð til með sameiningu Sparisjóðs vélstjóra og Sparisjóðs Hafnarfjarðar 1. desember í fyrra.

Í uppgjör sparisjóðsins kemur fram að vaxtatekjur hafi numi rétt rúmum fimm milljörðum króna á tímabilinu, sem er 42,6 prósenta aukning frá sama tíma í fyrra. Vaxtagjöld námu á sama tíma rétt tæpum 4,2 milljörðum króna, sem er 49,4 prósenta aukning frá fyrri hluta síðasta árs.

Þá námu hreinar rekstrartekjur tæpum 6,7 milljörðum króna samanborið við rúma 1,6 milljarða í fyrra. Aukningin nemur 306,8 prósentum. Á móti námu rekstrargjöld rúmum 1,3 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins en það er 89,4 prósenta aukning frá síðasta ári. Almennur rekstrarkostnaður jókst um 127,2 prósent en launakostnaður um 56 prósent á tímabílinu.

Arðsemi eigin fjár var 62,4 prósent á ársgrundvelli. Eigið fé nam 18,2 milljörðum króna í júnílok en það er 4,3 milljörðum meira við áramótin. Eiginfjárhlutfall nemur 14,6 prósentum.

Uppgjör Byr sparisjóðs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×