Viðskipti innlent

Samið vegna útibús Kaupþings í Noregi

Jónas Fr. Jónsson, forstjóri FME. Fjármálaeftirlitin hér og í Noregi hafa undirritað samstarfssamning vegna starfsemi útibús Kaupþings í Noregi.
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri FME. Fjármálaeftirlitin hér og í Noregi hafa undirritað samstarfssamning vegna starfsemi útibús Kaupþings í Noregi. Mynd/Valli.

Fjármálaeftirlitið (FME) og Kredittilsynet i Noregi hafa undirritað samstarfssamning vegna starfsemi útibús Kaupþings í Noregi. Bankinn hefur sótt um aðild að innistæðutryggingasjóði norskra banka (Bankenes sikringsfond) en það er gert til að tryggja að viðskiptavinir bankans í Noregi njóti sömu innistæðutryggingar og viðskiptavinir norskra innlánsstofnana.

Á vefsíðu FME segir að samningurinn sé tilkominn vegna þess að vernd innistæðueigenda sé töluvert hærri í Noregi en á Íslandi. Með aðild Kaupþings að norska innistæðutryggingasjóðnum felst að sjóðurinn myndi þá greiða mismunin á milli norsku og íslensku innistæðutryggingarinnar ef til þess kæmi.

Jónas Fr. Jónsson, forstjóri FME, og Björn Skogstad Aamo, forstjóri Kredittilsynet, undirrituðu samninginn í Ósló í Noregi í gær en þar stendur nú yfir árlegur forstjórafundur norrænna fjármálaeftirlita, að því er fram kemur á vefsíðu FME.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×