Viðskipti innlent

Grænt ljós á kaup Straums í Tékklandi

William Fall, forstjóri Straums Burðaráss, og Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður bankans.
William Fall, forstjóri Straums Burðaráss, og Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður bankans. Mynd/Anton

Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt kaup Straums-Burðarássá 50 prósenta hlut í tékkneska fjárfestingabankanum Wood & Company. Straumur keypti hlutinn í júní með kauprétt að eftirstandandi hlutum eigi síðar en árið 2011.

Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að kaupin séu meðal annars háð samþykki Seðlabanka Tékklands.

Þegar greint var frá viðskiptunum í júní var kaupverð ekki gefið.

Meðal viðskiptavina Wood & Company eru fjárfestar og fyrirtæki í Mið- og Austur-Evrópu. Þá hafa jafnframt alþjóðlegir stofnanafjárfestar og fjárfestingarbankar leitað til bankans til að öðlast aðgang að mörkuðum í Austur- og Mið-Evrópu. Bankinn hefur um þrjátíu prósenta markaðshlutdeild í kauphöllinni í Prag. Þá hefur það einnig aðild að kauphöllunum í Búdapest, Varsjá, Búkarest og Ljúblíana, sem og kauphöllum Austurríkis og Þýskalands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×