Handbolti

Markús Máni að hætta?

Valsmenn þurfa að fylla stórt skarð í liði sínu ef Markús Máni ákveður að leggja skóna á hilluna
Valsmenn þurfa að fylla stórt skarð í liði sínu ef Markús Máni ákveður að leggja skóna á hilluna

"Ég get ekkert sagt um það á þessari stundu," sagði Markús Máni Michaelsson í samtali við Vísi þegar hann var spurður hvort hann ætlaði sér að spila með Íslandsmeisturum Vals í vetur. Markús er samningsbundinn Val en segir frekar ólíklegt að hann verði á fullu með liðinu í deildarkeppninni.

"Ég hef ekkert æft með liðinu undanfarið og menn geta nú kannski lesið milli línanna hvað það þýðir, en ég gef ekki út neina yfirlýsingu núna," sagði Markús. Hann segist hafa fengið tilboð um að fara í atvinnumennsku bæði í fyrra og hittifyrra en ekkert varð úr því. "Það kemur ekki til greina að spila fyrir annað félag en Val hér heima og ég væri búinn að stökkva á það ef ég hefði fengið gott tilboð að utan," sagði Markús Máni, sem hefur ekki geta einbeitt sér að handboltanum á fullu vegna anna í vinnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×