Viðskipti innlent

Skuldatryggingarálag í hæstu hæðum

Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings. Skuldatryggingarálag bankans er þrefalt hærra nú en í júní. Álagið er hærra en hjá Glitni og Landsbankanum.
Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings. Skuldatryggingarálag bankans er þrefalt hærra nú en í júní. Álagið er hærra en hjá Glitni og Landsbankanum. Mynd/Vilhelm
Skuldatryggingarálag íslensku viðskiptabankanna hefur hækkað töluvert undanfarinn mánuð í kjölfar óróa á erlendum fjármálamörkuðum. Álagið hefur farið hækkandi frá því um miðjan júní og hefur vísitala yfir skuldatryggingarálag fjármálafyrirtækja rúmlega fimmfaldast á tímabilinu.



Greiningardeild Landsbankans bendir á það í Vegvísi sínum í dag, að frá því skuldatryggingarálagið byrjaði að hækka hafi álagið rúmlega tvöfaldast hjá Landsbankanum, álag Glitnis nokkuð meira og álag Kaupþings hefur rúmlega þrefaldast. Hækkun íslensku bankanna er því hlutfallslega mun minni en hækkun ITRAXX-fjármálavísitölunnar á sama tímabili, að sögn greiningardeildar Landsbankans.

Skuldatryggingarálag Kaupþings hefur hækkað mest og er álagið nú hærra en þegar það var hæst í mars á síðasta ári. Sama gildir um skuldatryggingarálag Glitnis. Skuldatryggingarálag Landsbankans er nú um þriðjungi lægra en í mars á síðasta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×