Viðskipti innlent

Gengi Atlantic Petroleum rauk upp

Wilhelm Pettersen, forstjóri Atlantic Petroleum. Gengi bréfa í fyrirtækinu hefur hækkað um heil 135 prósent á árinu.
Wilhelm Pettersen, forstjóri Atlantic Petroleum. Gengi bréfa í fyrirtækinu hefur hækkað um heil 135 prósent á árinu.

Gengi hlutabréfa hækkaði nokkuð í Kauphöllinni í dag, sum talsvert meira en önnur. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,24 prósent og endaði í 7.949 stigum. Gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hækkaði langmest, eða um 9,19 prósent. Gengið hefur hækkað um heil 135 prósent á árinu. Gengi bréfa í stoðtækjafyrirtækinu Össuri lækkaði hins vegar mest í dag, eða um 1,46 prósent.

Úrvalsvísitalan hefur hækkað um slétt 24 prósent það sem af er ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×