Handbolti

Meistararnir enn án sigurs

Mynd/Rósa

Íslandsmeistarar Vals byrja leiktíðina ekki glæsilega í N1 deildinni í handbolta, en í kvöld tapaði liðið öðrum leiknum í röð í upphafi móts þegar það lá fyrir Stjörnumönnum í Garðabæ 27-22 eftir að hafa verið yfir í hálfleik.

Ólafur Víðir Ólafsson skoraði 8 mörk fyrir Stjörnuna í kvöld en Ernir Hrafn Arnarson skoraði 5 fyrir Valsmenn. Stjarnan spilaði í kvöld vígsluleik á nýja heimavellinum, Mýrinni í Garðabæ, og hefur liðið nú unnið tvo fyrstu leiki sína í deildinni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×