Viðskipti innlent

Úrvalsvísitalan óbreytt eftir daginn

Kauphöll Íslands.
Kauphöll Íslands.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,01 prósent við lokun viðskipta í dag eftir nokkuð sveiflukenndan dag. Þetta er svipað genginu á erlendum hlutabréfamörkuðum en vísitölur erlendis hafa sveiflast nokkuð beggja vegna núllsins. Gengi bréfa í Tryggingamiðstöðinni hækkaði mest í dag, eða um 2,17 prósent.

Gengi bréfa í Century Aluminum lækkaði hins vegar mest, eða um 1,61 prósent.

Úrvalsvísitalan stendur í 7.889 stigum og hefur hækkað um 23,06 prósent frá áramótum. Hæst fór vísitalan í 9.016 stig um miðjan júlí en lækkaði hratt eftir það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×