Viðskipti erlent

Teymi kaupir Landsteina Streng

Árni Pétur Jónsson, forstjóri Teymis, sem hefur keypt Landsteina Streng og HugAx auk þess að selda 80 prósenta hlut sinn í Hands Holding.
Árni Pétur Jónsson, forstjóri Teymis, sem hefur keypt Landsteina Streng og HugAx auk þess að selda 80 prósenta hlut sinn í Hands Holding.

Teymi hefur keypt allt hlutafé í Landsteinum Streng ehf. og Hugi Ax ehf. Á sama tíma hefur félagið selt rúman 80 prósenta hlut sinn í Hands Holding hf.

Kaupverð beggja félaga er greitt með eignarhlut í Hand Holding, lánsfé og yfirteknum skuldum fyrir 2,16 milljarða króna og tæpum 1,3 milljörðum í handbæru fé.

Áætluð velta Landsteina Strengs og Hugar Ax nemur samtals um 2,3 milljörðum króna og áætlaður rekstrarhagnaður fyrir gjöld nemi um 350 milljónum króna á árinu. Hjá félögunum starfa um 200 manns.

Landsteinar Strengur og Hugur Ax verða hluti af samstæðureikningi Teymis hf. frá 1. október síðastliðnum, að því er segir í tilkynningu frá Teymi.

Þar segir ennfremur að Teymi hafi átt 48,7 prósenta eignarhlut í Hands Holding fyrir viðskiptin en heldur eftir 14,5 prósentum en bókfært virði hans nemur 101 milljón króna.

Gjaldfærsla hjá Teymi vegna Hands Holding hf. nemi 1,1 milljarði króna á þriðja ársfjórðungi og muni ábyrgðir á skuldum Hands Holding lækka úr 7,5 milljjörðum í 2,7 milljarða.

Samhliða þessum viðskiptum selur Hands Holding einnig aðrar rekstrareiningar en eftir þau viðskipti nema vaxtaberandi skuldir félagsins að frádregnu handbæru fé um þremur milljörðum króna. Í Hands Holding standa þá eftir Kerfi í Danmörku og Svíþjóð, Hands í Noregi, SCS í Bandaríkjunum og Aston Baltic í Lettlandi. Unnið er að endurfjármögnun Hands Holding.

Viðskiptin koma inn í afkomutölur Teymis á þriðja ársfjórðungi sem kynntar verða á næstu dögum og valda því að vaxtaberandi skuldir að frádregnu handbæru fé hækka úr 16,1 milljarði í 19,5 milljarða og verður eiginfjárhlutfall 26 prósent í stað 30 prósenta áður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×