Viðskipti innlent

Nýherji kaupir 77 prósent í TM Software

Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, sem hefur samið um kaup á 77 prósenta hlut í TM Software.
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, sem hefur samið um kaup á 77 prósenta hlut í TM Software. Mynd/E.Ól

Nýherji hefur samið um kaup á 77 prósenta hlut í upplýsingatæknifyrirtækinu TM Software hf.. Seljendur eru Straumur, FL Group og Tryggingamiðstöðin. Kaupverð nemur 1,3 milljörðum króna.

Nýherji ráðgerir að gefa út nýtt hlutafé að nafnverði 55 milljónir króna vegna hluta kaupanna. Hlutaféð verður boðið til kaups á genginu 22 krónur á hlut og eru því 1.210 milljónir króna fjármagnaðar með sölu hlutafjár. Rúmur þriðjungur kaupverðsins verður greiddur með hlutabréfum í Nýherja en 67,65 prósent í peningum.

Áformað er að verja allt að 25 milljónum að nafnverði hlutafjár til að greiða

hluthöfum í TMS en 30 milljónir verða boðnar núverandi hluthöfum í Nýherja.

Eftirstöðvar kaupverðsins verða fjármagnaðar með lánsfé og úr sjóðum

félagsins. Nýherji mun bjóða öðrum hluthöfum í TMS að selja sinn hlut á sömu kjörum og þeir sem þegar hafa samið um sölu sinna hluta.

TM Software er móðurfélag fimm félaga: Skyggnis, Origo, Vigor, eMR og IPT og eru mörg af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins á meðal viðskiptavina fyrirtækisins. Tekjur samstæðunnar eru áætlaðar um 2,5 milljarðar króna í ár en starfsmenn eru um 280.

Í tilkynningu frá Nýherja segir að markmið kaupanna sé að styrkja samstæðu félagsins á sviði rekstrarþjónustu, hýsingar og þróunar sérhæfðra hugbúnaðarlausna fyrir fyrirtæki. Straumur annaðist milligöngu um kaupin og eru þau háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunar sem og samþykki samkeppnisyfirvalda.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×