Viðskipti erlent

Afkoma Microsoft yfir væntingum

Bill Gates, stjórnarformaður og annar af stofnendum hugbúnaðarrisans Microsoft, teygir úr sér á kynningarfundi fyrirtækisins.
Bill Gates, stjórnarformaður og annar af stofnendum hugbúnaðarrisans Microsoft, teygir úr sér á kynningarfundi fyrirtækisins. Mynd/AFP

Bandaríski hugbúnaðarrisinn Microsoft tók inn 4,29 milljarða bandaríkjadala í hagnað, jafnvirði 261 milljarð íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi, sem er fyrsti rekstrarfjórðungur fyrirtækisins. Þetta er heilum 23 prósentum meira en á sama tíma í fyrra og skrifast á mikla sölu á Windows Vista, nýjasta stýrikerfi fyrirtækisins og tölvuleikinn Halo 3.

Þá námu tekjur hugbúnaðarrisans 13,76 milljörðum dala, sem er 27 prósentum meira en á sama tíma í fyrra.

Þetta er langtum betri afkoma en markaðsaðilar höfðu reiknað með og telja greinendur að næsti fjórðungur verði mjög góður hjá fyrirtækinu.

Gengi hlutabréfa í Microsoft tók kipp eftir að afkomutölurnar lágu fyrir við lokun hlutabréfamarkaða í Bandaríkjunum í gærkvöldi og stukku upp um ellefu prósent eftir langa kyrrstöðu. Gengi bréfa í fyrirtækinu stendur nú í 35 dölum á hlut.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×