Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Ég vakna yfirleitt í kringum sjö.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Ég byrja á því að ná mér í kaffi, svo hlusta ég á morgunbænina og orð dagsins á Rás 1 meðan ég drekk fyrsta kaffibollann. Gott að byrja daginn á þessu áður en maður fer í símann og allt sem því fylgir.
Aðra hvora viku er ég síðan með yngstu stelpuna mína sem er átta ára, þá fer maður í að koma henni á fætur og græja morgunmat og nesti fyrir daginn. Við erum líka með hund sem þarf að komast í morgungönguna sína.“
Hvaða jólasveini líkist þú mest?
Skooo ætli ég hafi ekki verið soldill Hurðaskellir á árum áður, það gátu verið læti í manni.
En í dag eftir að maður sneri blaðinu við myndi ég segja að ég finni mestu tenginguna við Skyrgám, enda skyr með bláberjum og rjóma eitt það besta sem ég fæ.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Helstu verkefni líðandi stundar myndi ég segja að væru nokkur. Ég æfi Cross Fit og Hyrox af krafti og er búinn að skrá mig í Hyrox keppni í Köln í apríl, þannig maður er að æfa fimm til sex sinnum í viku. Svo er CrossFit open eftir áramót líka en gaman að segja frá því að ég náði inn í Quarterfinals seinast í mínum aldursflokk.
Síðan er stefnan tekin á PuffinRun í Vestmannaeyjum næsta sumar, Hengil Ultra og Laugarvegshlaupið, þessi náttúruhlaup eru að koma sterk inn hjá mér en ég prufaði það í fyrsta skipti seinasta sumar og tók 26km í Henglinum. Þetta er ótrúlega gaman og maður er farinn að æfa fyrir þetta.
Síðan var verið að bjóða mér að vera með í spennandi verkefni sem tengist því að aðstoða fanga sem hafa áhuga á að snúa við blaðinu, að finna réttu leiðina til þess. Ég hef reynslu á því sviði og langar að nýta hana til að hjálpa öðrum að öðlast betra líf í Frelsi.
Síðast en ekki síst erum við hjá Hemli að fara af stað með nýtt konsept á verkstæðinu, en það er að vera með hemlaviðgerðir á föstum verðum, miðað við stærð bíla og verð á varahlutum. Það er kominn linkur inná Noona appið með fyrstu drögum að þessum tilboðum og bindum við vonir um að þetta eigi eftir að verða vinsælt. Unga fólkið kann að meta þetta og vonandi hinir líka.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Ég verð nú að viðurkenna að ég er ekki sá skipulagðasti, ég nota notes í símanum mínum mikið. Skrifa bókanir niður í dagbók á verkstæðinu og nota minnismiða.
Stundum bókar maður bíla í viðgerð á ferðinni og gleymir að færa þá inn í dagbókina á verkstæðinu og þá verður yfirflæði, það leysum við með jákvæðni sem er sennilega minn helsti kostur og ótrúlegum dugnaði og eljusemi.
Annars stendur þetta til bóta á nýju ári með nýju bókunarkerfi sem við erum að taka í notkun um áramót. Noona appið kemur líka sterkt inn þarna.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Ég fer alltaf að sofa rúmlega ellefu á kvöldin á virkum dögum. Tek góða bæn, þakka fyrir daginn og sofna á núll einni.“