Viðskipti erlent

Hagvöxtur í Bandaríkjunum umfram spár

Maður að störfum í Bandaríkjunum.
Maður að störfum í Bandaríkjunum. Mynd/AP

Hagvöxtur í Bandaríkjunum mældist 3,9 prósent á þriðja ársfjórðungi samanborið við 3,8 prósent á öðrum ársfjórðungi, samkvæmt útreikningum bandaríska viðskiptaráðuneytisins. Þetta er nokkuð meiri hagvöxtur en reiknað hafði verið með á fjórðungnum sem einkennst hefur á þrengingum á bandarískum fasteignamarkaði og lausafjárkrísu á fjármálamörkuðum.

Flestir höfðu reiknað með 3,1 prósents hagvexti.

Vöxtur varð í flestum greinum ólíkt því sem spáð var, að sögn fréttastofu AFP.

Breska ríkisútvarpið hefur hins vegar eftir fjármálasérfræðingum, að líklega muni hagvöxtur verða nokkru minni á yfirstandandi fjórðungi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×