Handbolti

GOG í þriðja sætið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ásgeir Örn Hallgrímsson fagnar í leik með íslenska landsliðinu.
Ásgeir Örn Hallgrímsson fagnar í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Pjetur

GOG Svendborg vann í kvöld sigur á Viborg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta, 31-26.

Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði fjögur mörk fyrir GOG en Snorri Steinn Guðjónsson komst ekki á blað.

Eftir sigurinn er GOG í þriðja sæti deildarinnar með ellefu stig eftir níu leiki og er fjórum stigum á eftir toppliði FCK sem á þó leik til góða. 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×