Bruninn á Grettisgötu: Eigandinn vaktaði húsið Breki Logason skrifar 8. nóvember 2007 16:58 Af vettvangi við Grettisgötu 61 í nótt. Myndina tók Birkir Jónsson
Sigurður Ólason eigandi Grettisgötu 61 sem kviknaði í í nótt segist sjálfur hafa vaktað húsið í vikunni. Hann sagði i leigjendum upp um mánaðarmótin og enginn hefur verið í húsinu síðan um helgina. „Upphaflega var þetta hústaka en fólkið fékk að vera þarna áfram gegn einhverri smá greiðslu. Síðan voru nágrannar farnir að kvarta og lögreglan hafði samband við mig. Þá kom ég þessu fólki bara út," segir Sigurður en þetta mun hafa verið um síðustu helgi. „Húsið var vaktað af bæði mér og lögreglunni. Ég og menn frá mér komu þarna á ákveðnum tímum til þess að sjá til þess að enginn væri í húsinu," segir Sigurður sem vill segist ekkert vita um hvort kveikt hafi verið í húsinu. „Þarna kviknaði bara í og meira vitum við ekki á þessari stundu. Það getur vel verið að einhver viðurkenni að hafa kveikt í og þá er það bara svoleiðis." Sigurður segir húsið hafa verið á sölu á 42 milljónir. „Fólk talar um að menn kveiki í húsinu sínu til þess að græða peninga. Brunabótamatið á húsinu er ekki nema 17 milljónir þannig að það græðir enginn á þessu, þetta er alltaf skaði." Lögreglan rannsakar nú málið og hefur ekki útilokað að um íkveikju sé að ræða. Í dag hefur því verið fleygt fram að um fíkniefnauppgjör sé að ræða en Sigurður segist ekkert vita um það. „Það sést strax hvort það hafi verið kveikt viljandi í húsinu og það er alveg jafn leiðinlegt og hvað annað."
Mest lesið Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Þrír menn handteknir eftir að þeir ruddust inn á heimili Innlent „Árleg æfing í vonbrigðum“ Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Innlent Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Innlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent Vara við gosmengun á nærliggjandi svæðum í dag Innlent Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Vara við gosmengun á nærliggjandi svæðum í dag Þrír menn handteknir eftir að þeir ruddust inn á heimili „Árleg æfing í vonbrigðum“ Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Frægasti köttur landsins týndur Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Engar ruslatunnur í Grindavík Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Sjá meira