Handbolti

Stjarnan aftur á toppinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stjörnumenn fagna.
Stjörnumenn fagna.

Stjarnan vann nauman sigur á Val, 18-17, í N1-deild kvenna í kvöld. Florentina Grecu fór hamförum í marki Stjörnunnar og varði 28 skot.

Valsmenn skoruðu síðustu tvö mörk leiksins en komust ekki nær. Ekkert mark var skorað síðustu þrjár mínútur leiksins.

Rakel Dögg Bragadóttir skoraði átta mörk fyrir Stjörnuna og Alina Petrache bætti við fimm.

Hjá Val var Nora Valovics markahæst með fimm mörk en þær Íris Ásta Pétursdóttir og Eva Barna skoruðu þrjú mörk hver.

Með sigrinum komst Stjarnan aftur á topp deildarinnar en liðið er með fimmtán stig eftir átta leiki, einu stigi meira en Fram.

Valur er í þriðja sæti deildarinnar með tólf stig en öll toppliðin hafa leiki átta leiki í deildinni til þessa. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×