Handbolti

HK blandar sér í toppbaráttuna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Björgvin Hólmgeirsson reynir að halda aftur af Tomas Eitutis í kvöld.
Björgvin Hólmgeirsson reynir að halda aftur af Tomas Eitutis í kvöld. Mynd/Anton

HK vann í kvöld öruggan útisigur á Stjörnunni í N1-deild karla, 29-21. Þar með eru þrjú lið efst og jöfn í deildinni með ellefu stig.

Staðan í hálfleik var 13-12, HK í vil, en eftir það tóku gestirnir öll völd á vellinum.

Tomas Eitutis og Gunnar Steinn Jónsson skoruðu átta mörk hver fyrir HK í kvöld.

Hjá Stjörnunni var Jón Heiðar Gunnarsson markahæstur með fimm mörk og Ólafur Víðir Ólafsson var með fjögur.

Haukar er þriðja liðið á toppnum með ellefu stig en liðið á leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×