Viðskipti erlent

Smásöluverslun jókst lítillega í Bandaríkjunum

Með pokana úr Wal-Mart. Smásöluverslun jókst lítillega í Bandaríkjunum í síðasta mánuði.
Með pokana úr Wal-Mart. Smásöluverslun jókst lítillega í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Mynd/AFP

Smásöluverslun jókst um 0,2 prósent á milli mánaða í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Til samanburðar jókst verslun um 0,7 prósent á milli mánaða í september. Fjármálaskýrendur segja greinilegt að slæmar aðstæður á fasteignamarkaði í Bandaríkjunum, hátt raforkuverð og erfiðara aðgengi að lánsfé nú um stundir hafi sett mark sitt á einkaneyslu vestanhafs.

Fréttastofan Associated Press bendir sömuleiðis á að veður hafi verið óvenjugott í síðasta mánuði sem hafi spilað inn í smásölutölurnar. Horfur þykja ekki bjartar það sem af er árs enda aðstæður í efnahagslífinu með versta móti vestanhafs, að sögn Associated Press, sem bendir á að einkaneysla nemi þriðjungi af bandarískum hagvísum og geti samdráttur þar í landi því komið niður á hagvexti á síðasta mánuði ársins.

Reiknað er nú með að hagvöxtur muni mælast 1,5 prósent í Bandaríkjunum á síðasta fjórðungi ársins samanborið við 3,9 prósenta hagvöxt á þriðja fjórðungi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×