Golf

Metverðlaunafé í Dubai

Elvar Geir Magnússon skrifar
Það verður mikið undir í Dubai.
Það verður mikið undir í Dubai.

Árið 2009 verður veitt hæsta verðlaunafé fyrir golfmót í sögunni. Sigurvegarinn í evrópsku mótaröðinni í Dubai mun geta brosað út að eyrum en hann mun fá um 1,67 milljónir dala í verðlaun sem eru rúmlega 100 milljónir íslenskra króna.

Mótshaldararnir í Dubai lögðu mikið á sig til að fá lokamót evrópsku mótaraðarinnar en þarna munu bestu kylfingar heims berjast um hæsta verðlaunafé í heimi.

Mótið verður haldið 19. - 22. nóvember 2009.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×