Golf

Birgir Leifur tryggði sér sæti á Evrópumótaröðinni

Birgir Leifur er kominn á Evróputúrinn annað árið í röð
Birgir Leifur er kominn á Evróputúrinn annað árið í röð

Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG tryggði sér í dag sæti á Evrópumótaröðinni í golfi á næsta ári þegar hann lauk lokahring sínum á pari í dag og endaði því á samtals fimm höggum undir pari.

30 efstu kylfingarnir á þessu lokaúrtökumóti öðlast rétt til að spila á Evrópumótaröðinni á næsta ári og nú er Birgir Leifur öruggur um að spila þar annað árið í röð.

Birgir byrjaði ágætlega á lokahringnum í morgun en lenti svo í erfiðleikum og um tíma var hann út úr myndinni með að ná í hóp 30 efstu manna á San Rouge vellinum á Spáni.

Hann fékk hinsvegar tvo fugla og eitt par á síðustu þremur holunum og stóðst pressuna með sóma. Birgir endaði mótið í 11.-15. sæti með þessum glæsilega endaspretti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×