Viðskipti innlent

Miklar sveiflur í Kauphöllinni

Kauphöll Íslands.
Kauphöll Íslands.

Talsverðar hreyfingar voru á gengi hlutabréfa í Kauphöllinni í dag, ekki síst á fjármálafyrirtækjum og bönkum. Gengi hins færeyska Eikarbanka hækkaði um 3,8 prósent á meðan gengi 365 féll um 4,67 prósent.

Þetta er nokkuð á skjön við hreyfinguna á hlutabréfamörkuðum í Evrópu, ekki síst á Norðurlöndunum, í dag. Þá er gengi hlutabréfa að mestu á uppleið í Bandaríkjunum. 

Úrvalsvísitalan sveiflaðist nokkuð beggja vegna núllsins en hækkaði um 0,15 prósent við enda dags. Hún stendur nú í 6.753 stigum sem þýðir að hún hefur hækkað um 5,32 prósent á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×