Handbolti

HK fór létt með ÍBV

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ragnar Hjaltested skoraði tíu mörk fyrir HK í dag.
Ragnar Hjaltested skoraði tíu mörk fyrir HK í dag.

HK vann í dag fjórtán marka sigur á ÍBV í N1-deild karla. Ragnar Hjaltested skoraði tíu mörk fyrir HK-inga.

Eins og úrslit leiksins gefa til kynna var sigurinn öruggur en staðan í hálfleik var 19-10, HK í vil.

HK er enn í öðru sæti deildarinnar með sautján stig og á leik til góða á topplið Hauka sem er með nítján stig. ÍBV er á botni deildarinnar með tvö stig. 

Mörk HK: Ragnar Hjaltested 10, Ragnar Snær Njálsson 6, Ólafur Ragnarsson 3, Sergei Petraytis 3, Sigurgeir Árni Ægisson 3, Gunnar Steinn Jónsson 3, Árni Björn Þórarinsson 2, Tomas Eitutis 2, Agustas Strazdas 2, Bjarki Már Gunnarsson 1, Hákon Bridde 1.

Mörk ÍBV: Sergiy Trotsenko 12, Leifur Jóhannsson 3, Nikolay Kulikov 2, Zivlinas Grieze 2, Sindri Haraldsson 2, Grétar Þór Eyþórsson 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×