Viðskipti innlent

Bresk eign Baugs og FL Group niður um sextán prósent

Maður í fötum frá Moss Bros. Gengi félagsins féll um rúm sextán prósent í dag.
Maður í fötum frá Moss Bros. Gengi félagsins féll um rúm sextán prósent í dag.

Gengi hlutabréfa í bresku herrafatakeðjunni Moss Bros féll um rúm sextán prósent við upphaf viðskiptadagsins í bresku kauphöllinni í dag eftir að fyrirtækið sendi frá sér afkomuviðvörun þar sem fram kemur að ólíklegt sé að félagið nái markmiðum sínum á árinu. Unity Investments, félag í eigu Baugs, FL Group og breska fjárfestisins Kevin Stanfords, á nærri 30 prósenta hlut í keðjunni.

Gengið jafnaði sig lítillega eftir því sem á leið en verðmiðinn á verslanakeðjunni stendur í 32,25 pensum á hlut sem jafngildir að markaðsvirðið hafi fallið um rúm 15 prósent það sem af er dagsins.

Stjórnendur herrafatakeðjunnar höfðu reiknað með að tekjur verslunarinnar myndu nema tæpum 145 milljónum punda, jafnvirði rúmum 18,5 milljörðum íslenskra króna, og að rekstrarhagnaður fyrir skatta og gjöld myndi skila 3,8 milljónum punda. Félagið tapaði 800 þúsundum punda á fyrri hluta ársins.

Breska dagblaðið Times hefur eftir sérfræðingi í smásöluverslun að afkomuviðvörunin komi ekki á óvart þar sem almennur samdráttur sé hjá breskum fataverslunum um þessar mundir.

Philip Mountford, forstjóri herrafatakeðjunnar, segir í samtali við blaðið söluna síðastliðna tvo mánuði fyrirboða um það sem koma skuli. Salan á tímabilinu hafi dregist saman um 3,7 prósent síðastliðnar sjö vikur. Sé hins vegar litið til ársins í heild jókst salan um 1,1 prósent. Stefni því allt í dræmari sölu um jólin en reiknað hafði verið með, líkt og fram kemur í tilkynningu Moss Bros.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×