Viðskipti innlent

AMR í algjöru lágflugi

Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group. Félagið á 1,1 prósent í AMR, sem féll um rúm níu prósent á bandarískum hlutabréfamarkaði í gær.
Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group. Félagið á 1,1 prósent í AMR, sem féll um rúm níu prósent á bandarískum hlutabréfamarkaði í gær. Mynd/Anton Brink

Gengi hlutabréfa í bandarísku flugrekstrarsamstæðunni AMR, móðurfélagi flugfélagsins American Airlines, eins stærsta flugfélags Bandaríkjanna, hrundi á þarlendum hlutabréfamarkaði í gær og fór í sitt lægsta gildi á árinu.

FL Group flaggaði kaupum á stórum hlut í AMR undir lok síðasta árs og átti í enda síðasta mánaðar rúman níu prósenta hlut í félaginu. FL Group seldi mestan hluta eignarinnar um mánaðamótin en heldur eftir um 1,1 prósenti.

Gengið féll um rúm níu prósent og fór í 17,81 dal við lokun viðskipta í Bandaríkjunum í gær. Lægst fór það hins vegar í 17,60 dali og hafði ekki verið lægra síðan í nóvember árið 2005. Hæst fór það hins vegar í 40,66 dali á hlut í febrúar. Gengi bréfa í flugrekstrarsamstæðunni hefur því fallið um rúm 56 prósent frá þeim tíma.

Markaðsvirði AMR stendur í 4,44 milljörðum dala en það jafngildir því að eignarhlutur FL Group stendur í um tæpum þremur milljörðum íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×