Birgir Leifur Hafþórsson komst betur frá öðrum keppnisdegi en þeim fyrsta á South African Airways-mótinu í Suður-Afríku en tvísýnt er hvort hann kemst í gegnum niðurskurðinn.
Hann lék á einu höggi yfir pari í dag. Hann hóf leik á fyrstu braut í dag og náði strax fugli. Hann náði öðrum fugli á fjórðu braut en fékk svo skolla á þeirri níundu. Engu að síður góður árangur og lék hann fyrri níu á einu höggi undir pari.
En eins og í gær gekk honum verr á síðari níu holunum sínum. Hann byrjaði á tíunda teig í gær og gekk vel þá á 10.-18. holu en í dag sýndi hann ekki sama stöðugleika.
Hann byrjaði á því að fá tvo skolla. Birgir Leifur náði þó góðum fugli á 12. holu sem er par þrír en fékk svo skolla á þeirri næstu, par fimm. Þá komu þrjú pör, skolli og svo fugl á átjándu.
Sem stendur er hann í 76.-86. sæti á mótinu og því óljóst hvort hann komist í gegnum niðurskurðinn. Það kemur í ljós síðar í dag þegar allir kylfingar hafa lokið keppni.
Annar keppnisdagur: Einn yfir pari.
1. braut: Par 4 (390 metrar) - 3 högg (fugl)
2. braut: Par 4 (390 metrar) - 4 högg (par)
3. braut: Par 5 (570 metrar) - 5 högg (par)
4. braut: Par 3 (205 metrar) - 2 högg (fugl)
5. braut: Par 5 (485 metrar) - 5 högg (par)
6. braut: Par 4 (332 metrar) - 4 högg (par)
7. braut: Par 4 (390 metrar) - 4 högg (par)
8. braut: Par 3 (209 metrar) - 3 högg (par)
9. braut: Par 4 (431 metrar) - 5 högg (skolli)
Fyrri níu (par 36): 35 högg (einn undir pari)
10. braut: Par 4 (353 metrar) - 5 högg (skolli)
11. braut: Par 4 (403 metrar) - 5 högg (skolli)
12. braut: Par 3 (183 metrar) - 2 högg (fugl)
13. braut: Par 5 (531 metrar) - 6 högg (skolli)
14. braut: Par 4 (356 metrar) - 4 högg (par)
15. braut: Par 3 (196 metrar) - 3 högg (par)
16. braut: Par 4 (422 metrar) - 4 högg (par)
17. braut: Par 4 (405 metrar) - 5 högg (skolli)
18. braut: Par 5 (550 metrar) - 4 högg (fugl)
Seinni níu (par 36): 38 högg (tveir yfir pari)
Samtals: 1 yfir pari
Fyrsti keppnisdagur: 79 högg (sjö yfir pari)
Annar keppnisdagur: 73 högg (einn yfir pari)
Samtals: 152 högg (átta yfir pari), 76.-86. sæti.