Golf

Birgir Leifur í gegnum niðurskurðinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. Nordic Photos / Getty Images

Birgir Leifur Hafþórsson komst í gegnum niðurskurðinn á South African Airways-mótinu í Suður-Afríku en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.

Eins og áður hefur komið fram lék Birgir Leifur á 73 höggum í dag, einu yfir pari vallarins, og er samtals á átta höggum yfir pari.

Eftir að allir kylfingar hafa lokið keppni í dag er ljóst að hann lenti í 54.-58. sæti en efstu 69 kylfingarnir komust áfram, eða allir þeir sem léku á níu höggum yfir pari eða betur.

Aðstæður eru erfiðar en mikill vindur hefur gert kylfingum erfitt fyrir. Aðeins eru þrír kylfingar undir pari eftir fyrstu keppnisdagana en efstur er heimamaðurinn James Kingston.

Greg Norman gengur vel og er í 6.-11. sæti á einu höggi yfir pari, rétt eins og Darren Clarke. Ernie Else er á þremur höggum yfir pari og í 16.-17. sæti og Retief Goosen í 18.-21. sæti á fjórum höggum yfir pari.


Tengdar fréttir

Birgir Leifur á einu höggi yfir pari í dag

Birgir Leifur Hafþórsson komst betur frá öðrum keppnisdegi en þeim fyrsta á South African Airways-mótinu í Suður-Afríku en tvísýnt er hvort hann kemst í gegnum niðurskurðinn.

Birgir Leifur á sjö höggum yfir pari í dag

Birgir Leifur Hafþórsson lék í dag á sjö höggum yfir pari á fyrsta keppnisdegi South African Airways-mótinu í Suður-Afríku en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×