Tónlist

Miðasala á Iceland Airwaves hefst á morgun

Áhugi á hátíðinni erlendis fer stigmagnandi ár frá ári
Áhugi á hátíðinni erlendis fer stigmagnandi ár frá ári

Miðasala á hina árlegu tónlistarhátíð Iceland Airwaves hefst á morgun. Hátíðin fer fram í níunda sinn í miðborg Reykjavíkur dagana 17-21 október næstkomandi. Þegar hafa 160 hljómsveitir og flytjendur boðað komu sína á hátíðina en gert er ráð fyrir að þeir verði um 200.

Hátíðin stendur yfir frá mánudegi til sunnudags og fer fram á átta tónleikastöðum vítt og breytt um bæinn. Armbönd sem gilda á alla viðburði verða seld í verslunum Skífunnar Laugavegi, Kringlunni og Smáralind í Reykjavík og verslunum BT á Akureyri, Egilstöðum og Selfossi. Miðasalan erlendis í gegnum pakkaferðir Icelandair hefur gengið betur en nokkru sinni fyrr og virðist áhugi á hátíðinni erlendis fara stigmagnandi ár frá ári.

Armböndin kosta 7.900 krónur út september en hækka upp í 8.500 krónur í október. Síðustu ár hefur verið uppselt á hátíðina og því ástæða fyrir fólk að næla sér í miða sem fyrst.

Meðal þeirra sem hafa boðað komu sína á hátína eru Bloc Party, of Montreal, Grizzly Bear, Deerhoof, og Chromeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×