Tónlist

Hita upp fyrir Eyjar

Ástralinn Toby Rand er á leiðinni á þjóðhátíð í Eyjum.
Ástralinn Toby Rand er á leiðinni á þjóðhátíð í Eyjum.

Rokkstjörnurnar Magni Ásgeirsson og hinn ástralski Toby Rand halda tónleika á Gauki á Stöng í kvöld ásamt hljómsveitinni Á móti sól. Um er að ræða nokkurs konar upphitun fyrir þjóðhátíð í Eyjum, þar sem Á móti sól ætlar að spila um verslunarmannahelgina.



Toby kemur til landsins ásamt félaga sínum úr hljómsveitinni Juke Kartel, gagngert til að upplifa þjóðhátíðarstemninguna sem Magni hefur dásamað svo mjög í hans eyru og hver veit nema þeir félagar taki lagið með Á móti sól í Eyjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.