Tónlist

Rignir niður plötum

Rapparinn Rigning heldur útgáfutónleika í kvöld.
Rapparinn Rigning heldur útgáfutónleika í kvöld. fréttablaðið/pjetur

Tónlistarmaðurinn Rigning heldur útgáfutónleika á Barnum í kvöld í tilefni af útkomu sinnar fimmtu sólóplötu, Askja Pandóru. Aðeins nokkrir mánuðir eru liðnir síðan síðasta sólóplata kappans kom út, þannig að afköst hans eru í miklu hámarki um þessar mundir. „Þessi plata varð eiginlega til fyrir tilviljun. Þetta eru lög sem ég er búinn að vera að vinna síðustu ár en átti eftir að gefa út,“ segir Rigning, eða Jói eins og hann heitir réttu nafni.

Askja Pandóru er önnur platan sem Rigning gefur út á íslensku. Hann segir það svipað að semja texta á íslensku og ensku. „Það er mismunandi eftir málefnum hvort ég syng á ensku eða íslensku. Það er mikið frjálsræði að geta flakkað á milli,“ segir hann.

Rigning er með mörg járn í eldinum um þessar mundir því hann hyggur á útgáfu annarrar plötu með Birki úr Forgotten Lores eftir tvo mánuði auk þess sem hann kemur fram á Iceland Airwaves-hátíðinni í haust með hljómsveitinni Audio Improvement.

Askja Pandóru, sem er gefin út í veglegum umbúðum, er ellefta platan sem kemur út á vegum útgáfufyrirtækisins Triangle Productions. Á útgáfutónleikunum í kvöld koma einnig fram Beatmakin Troopa og Awful Truth, sem eru einnig á vegum Triangle Productions. Tónleikarnir hefjast klukkan 22 og er aðgangur ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.