Fótbolti

Falsaðir miðar ollu troðningi

NordicPhotos/GettyImages

Forráðamenn franska liðsins Lille halda því fram að troðningurinn sem varð í áhorfendastæði liðsins í leiknum við Manchester United hafi orðið vegna þess að stuðningsmenn enska liðsins hafi falsað aðgöngumiða og því verið of margir í stæðinu.

"Umsjónarmenn miðanna hjá Manchester United sendu þá út fyrir mánuði í stað þess að afhenda þá við hliðin á leikdag og því komu þeir fölsuðu miðar sem voru í umferð allir frá þeim," sagði talsmaður franska félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×