Körfubolti

Spenna í Keflavík

Ifeoma Okonkwo fór fyrir liði Hauka í kvöld
Ifeoma Okonkwo fór fyrir liði Hauka í kvöld
Úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna hófst með látum í kvöld. Íslandsmeistarar Hauka voru fjarri sínu besta í fyrsta leiknum gegn ÍS en höfðu engu að síður sigur 76-61. Keflavíkurstúlkur lögðu granna sína frá Grindavík á heimavelli 87-84 í hörkuleik.

Íslandsmeistararnir hafa oft leikið betur ef marka má tölfræði liðsins í kvöld, en Haukarnir nýttu aðeins 35% 2ja stiga skota sinna. Ifeoma Okonkwo fór fyrir liðinu með 30 stigum og 13 fráköstum. Helena Sverrisdóttir skoraði 14 stig og hrti 13 fráköst en hitti aðeins úr 4 af 18 skotum sínum og tapaði 7 boltum.

Signý Hermannsdóttir var atkvæðamest Hauka með 16 stig, hirti 6 fráköst og varði 5 skot, Casey Rost skoraði 14 stig, hirti 9 fráköst og gaf 6 stoðsendingar og Stella Kristjánsdóttir skoraði 11 stig, en hitti reyndar mjög illa.

Ítarlega umfjöllun Fréttablaðsins um leikina verður að finna hér á Vísi eldsnemma í fyrramálið. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×