Menning

Magnús Pálsson minnist Þórarins Nefjólfssonar í i8

Bætir „enn einni minningunni“ við í Galleríi i8 á Klapparstíg. Hann segir menningararfinn þrengja sér inn í verk sín og framkvæmdir, enda sé hann ríkur þáttur í allri hans tilvist.
Bætir „enn einni minningunni“ við í Galleríi i8 á Klapparstíg. Hann segir menningararfinn þrengja sér inn í verk sín og framkvæmdir, enda sé hann ríkur þáttur í allri hans tilvist.

Í gær opnaði Magnús Pálsson athyglisverða sýningu í Galleríinu i8 á Klapparstíg 33. Sýningin mun standa til 18. ágúst næstkomandi og ber yfirskriftina Minning Þórarins Nefjólfssonar. „Frá unga aldri hefur setið í mér sagan af Þórarni og viðskiptum hans við Noregskonung,“ segir Magnús.

„Fyrr á árum gerði ég iðulega myndlistarverk í minningu persóna, atburða og fyrirbæra. Þar á meðal eru t.d. Minning Njálsbrennu, Minning Írafells-Móra og Minning fjallaþokunnar. Ég leyfi mér nú að bæta enn einni minningunni við, nefnilega Minningu Þórarins Nefjólfssonar.“

Á sýningunni sýnir Magnús skúlptúra og myndbönd. „Nýlega var ég spurður hvers vegna menningararfinn bæri svo oft fyrir í verkum mínum. Ég mun hafa svarað því sem svo að þetta væri ekki með ráðum gert heldur sé þessi arfur svo ríkur þáttur í allri minni tilvist og vitundarlífi að hann þrengi sér óboðinn inn í verk mín og framkvæmdir. Þessa skýringu endurtek ég gjarnan nú.“

Samtímis sýningu Magnúsar mun Unnur Mjöll S. Leifsdóttir sýna verk sitt Með hundshaus undir stiganum. Unnur stundaði nám í myndlist við Hunter College í New York og Listaháskóla Íslands en þaðan útskrifaðist hún árið 2005 með BA-gráðu frá myndlistardeild. Unnur Mjöll hefur skapað sér og list sinni vettvang bæði í New York og Seoul. Hún hefur einnig sýnt reglulega á Íslandi m.a. í Nýlistasafninu, Gallery Kling og Bang og Gallery Suð Suð Vestur.

Gallerí i8 er opið þriðjudaga-föstudaga frá kl. 11-17 og á laugardögum frá kl. 13-17.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.