Körfubolti

Njarðvík hafði betur í toppslagnum gegn KR

Njarðvíkingar þurfa einn sigur til viðbótar til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í körfubolta eftir sigur á helstu keppinautunum í KR í kvöld, 83-73. Njarðvík er nú komið með 34 stig eftir 19 leiki en næstu lið, KR og Skallagrímur, eru með 30. Alls eru leiknar 22 umferðir.

Jeb Ivey var stigahæstur Njarðvíkinga í kvöld og skoraði 27 stig en Brenton Birmingham var með 15 stig. Hjá KR skoraði Tyson Patterson mest eða 26 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×