Formúla 1

Aukinn þrýstingur á Mosley um að hætta

NordcPhotos/GettyImages

Aukins þrýstings gætir nú á Max Mosley, yfirmann Alþjóða Akstursíþróttasambandsins, um að segja af sér í embætti. Hann hefur verið borinn þungum sökum vegna hegðunar sinnar í einkalífinu.

Þannig hefur þýska akstursíþróttasambandið ritað honum bréf og beðið hann "að íhuga vandlega stöðu sina" sem forseti FIA. Þá hefur hollenska sambandið einnig ákveðið að gefa honum ekki atkvæði sitt á krísuþingi FIA sem haldið verður fljótlega - þar sem hneykslismál Mosley verður aðalumræðuefnið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×