Körfubolti

KR með tveggja stiga forystu í Keflavík

Hildur Sigurðardóttir átti fínan fyrri hálfleik í liði KR.
Hildur Sigurðardóttir átti fínan fyrri hálfleik í liði KR.

KR-stúlkur leiða með tveimur stigum, 45-43, í hálfleik gegn Keflavík í þriðja leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Candace Futrell hefur skorað 18 stig fyrir KR en TaKesha Watson er með 9 stig fyrir Keflavík.

KR-stúlkur leiddu eftir fyrsta leikhluta, 25-22. Þær skoruðu fyrstu níu stig annars leikhluta og náðu tólf stiga forystu, 34-22. Þegar líða tók á leikhlutann sóttur Keflavíkurstúlkur hins vegar í sig veðrið og minnuðu muninn eins og áður sagði í tvö stig, 43-45, áður en flautað var til leiksloka.

Stigahæstar hjá Keflavík: TaKesha Watson 9, Margrét Kara Sturludóttir 8 (6 fráköst), Susan Biemer 7 og Rannveig Randversdóttir 6.

Stigahæstar hjá KR: Candace Futrell 18, Hildur Sigurðardóttir 7 (5 stoðsendingar), Sigrún Ámundadóttir 7 (6 fráköst) og Hildur Einarsdóttir 6.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×