Tónlist

Sigurvegari Músíktilrauna syngur Mozart

Arnór Dan, söngvari rokksveitarinnar Agent Fresco, hefur lært sígildan söng við FÍH undanfarið ár og unir sér vel við námið.
Arnór Dan, söngvari rokksveitarinnar Agent Fresco, hefur lært sígildan söng við FÍH undanfarið ár og unir sér vel við námið. Fréttablaðið/Valli
„Daníel Bjarnason, hljómsveitarstjórinn í Óperustúdíóinu, hringdi bara í mig og bað mig um að taka þátt. Og ég gat ekki sagt nei enda er þetta fáránlega skemmtileg sýning,“ segir Arnór Dan Arnarson. Hann mun stíga sín fyrstu spor í óperuheiminum hinn 6. apríl þegar Óperustúdíó Íslensku óperunnar frumsýnir hið vinsæla verk Wolfgangs Amadeusar Mozart, Cosi van tutti. Arnór mun syngja í kórnum, sem er áberandi í sýningunni.

Arnór komst þó á spjöld íslensku tónlistarsögunnar fyrir allt annað en óperusöng fyrir ekki margt löngu þegar hljómsveit hans Agent Fresco sigraði í Músíktilraunum. Og þótt himinn og haf séu milli tónlistar Fresco og Mozart er Arnór ekki í vafa um að nám hans í sígildum söng hjálpi mikið til. Arnór er víst lýrískur baritónn þótt allt bendi til þess að hann verði tenór í sýningunni.

„Ég þarf að hita mig vel upp enda er þetta Mozart, sem þýðir háir tónar,“ segir Arnór. Hann hefur þó ekki rætt þetta nýjasta útspil við félaga sína í hljómsveitinni og er sér það til efs um að þeir muni koma og hlýða á söng hans. „Eða kannski. Og þó, nei, veistu ég held ekki,“ segir Arnór.

Óperustudíóið er hálfgert „nemendaleikhús“ Íslensku óperunnar. Ekkert er þó til sparað við að gera sýninguna sem glæsilegasta úr garði en leikstjóri hennar er Ágústa Skúldadóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.