Golf

Woods mætir Cink í úrslitum

Elvar Geir Magnússon skrifar
Tiger Woods.
Tiger Woods.

Tiger Woods og Stewart Cink munu mætast í úrslitum í heimsmeistarakeppninni í holukeppni. Woods sigraði síðast í þessu móti fyrir fjórum árum en Cink hefur aldrei komist svona langt.

Woods sigraði Svíann Henrik Stenson í undanúrslitum en Stenson hafði titil að verja á mótinu. Stewart Cink lagði Justin Leonard sannfærandi.

Úrslitaviðureignin er 36 holur og fer fram í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×