Viðskipti innlent

Hollendingar fagna Icesave

Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans
Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans

Landsbankinn hóf á fimmtudag að bjóða Hollendingum upp á Icesave-innlánsreikninga. Sigurjón Þ. Árnason, annar bankastjóra Landsbankans, greindi Markaðnum frá því í lok mars síðastliðnum, að stefnt væri að því að bjóða upp á Icesave í fjórum til fimm evrulöndum fyrir lok árs. Innkoman á hollenska markaðinn er fyrsta skrefið í þá átt.

Í samtali við Markaðinn sagðist Sigurjón mjög ánægður með fyrstu viðbrögð Hollendinga við Icesave. Strax á fyrsta degi voru þegar komnir 3800 viðskiptavinir.

Frá stofnun Icesafe í Bretlandi október 2006 hefur sú starfsemi farið fram úr björtustu vonum og segir Sigurjón að fjöldi viðskiptavina hafi náð 100 þúsund fyrsta árið með innlán í kringum 6-700 milljarða króna. Nú séu viðskiptavinirnir hins vegar orðnir nálægt 240 þúsund.

Að sögn Sigurjóns er ástæðan fyrir því að Icesafe hefur náð svona góðum árangri að bankinn geti boðið upp á góða innlánsvexti þar sem rekstrarkostnaður við að bjóða innlánsreikninga á netinu sé miklu minni en margra annarra á Bretlandi sem séu með útibússtarfsemi.

Spurður um hversu hátt hlutfall innlána bankans erlendis liggi í Icesafe segir hann það vera í kringum 6-700 milljarða króna en heildarinnlán bankans erlendis eru í kringum 1600 milljarðar króna.

Velgengni Icesafe í Bretlandi hefur veitt Landsbankanum algjöra sérstöðu í háu innlánshlutfalli bankans í samanburði við bæði Kaupþing og Glitni. 58 prósent af starfsemi Landsbankans fara fram erlendis en innlánshlutfall bankans kemur að 75 prósentum þaðan.- as






Fleiri fréttir

Sjá meira


×