Felipe Massa hjá Ferrari er aðeins einu stigi á eftir Lewis Hamilton hjá McLaren í stigakeppni ökumanna. Þeir leiða saman hesta sína á fyrstu æfingum keppnisliða á morgun, en kappaksturinn verður á sunnudaginn á flóðlýstri braut.
„Mönnum hefur gengið misvel í titilslagnum. Ég hef let í vandræðum, Hamilton og Raikkönen, jafnvel Kubica. Ég held að síðustu mótin verði jöfn og spennandi. Ef við höldum jöfnum hraða og bíllinn bilar ekki, þá eigum við ágæta möguleika á titlinum,“ sagði Massa á fréttamannafundi í dag.
„Dómsmál Hamilton fór eins og það átti að fara. Það var alltaf ljóst að það yrði þungur róður fyrir McLaren að áfrýja og ég tel að dómurinn í mótinu á Spa hafi verið sanngjarn. En núna einbeiti ég mér að mótinu í Singapúr. Ef ég vinn mótið með eins stigs mun, þá verð ég verðugur meistari.“
Mönnum er tíðrætt um hvort Raikkönen muni liðsinna Massa í síðustu mótum, hvað stigasöfnun varðar. En Massa býst ekki við neinni hjálp.
„Ég geri bara mitt besta og stend á eigin fótum. Ef við getum unnið öll síðustu mótin, öll fjögur, þá er það kjörstaðan. Ég mun gera mitt besta og veit að ég á möguleika á meistaratitiinum og Ferrari í keppni bílasmiða. Markmið okkar er að ná báðum titlum sem lið.“
Sjá nánar á kappakstur.is.