Íslenski boltinn

Páll ætlar ekki að hætta hjá Hvöt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Páll Einarsson við komuna til Fylkis á sínum tíma. Leifur Garðarsson og Jón Sveinsson eru einnig á myndinni.
Páll Einarsson við komuna til Fylkis á sínum tíma. Leifur Garðarsson og Jón Sveinsson eru einnig á myndinni.

Páll Einarsson sagði í samtali við Vísi að hann ætlaði sér að klára tímabilið með Hvöt frá Blönduósi sem leikur í 2. deildinni.

Páll tók við þjálfun liðsins nú fyrr í sumar en hann hefur verið orðaður við þjálfarastöðuna hjá Fylki. Leifi Garðarssyni og Jóni Sveinssyni, aðstoðarmanni hans, var sagt upp störfum í dag.

Ámundi Halldórsson, meðstjórnandi í meistaraflokksráði karla hjá Fylki, sagði í samtali við Vísi í dag að til tals hefði komið að ræða við þá Pál og Sverri Sverrisson, um að taka að sér þjálfun liðsins.

Báðir léku með Fylki á sínum tíma en þó aldrei saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×